Hvað er Advise?
Advise er öflugt og notendavænt mælaborð sem tekur saman lykiltölur fyrirtækja í rauntíma og auðveldar stjórnendum að greina reksturinn og spara í leiðinni tíma og vinnu.
Hlutverk
Hlutverk okkar er að veita stjórnendum betri yfirsýn og innsýn í rekstur fyrirtækja til þess að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir, hagrætt í rekstri og náð settum markmiðum.
Framtíðarsýn
Okkar markmið er að veita stjórnendum og öðrum hagsmunaðilum lausnir til þess að sinna því sem er algjörlega nauðsynlegt í rekstri fyrirtækja á snjallari og skemmtilegri hátt.
Hvað er Advise?
Advise er öflugt og notendavænt mælaborð sem tekur saman lykiltölur fyrirtækja í rauntíma og auðveldar stjórnendum að greina reksturinn og spara í leiðinni tíma og vinnu.
Hlutverk
Hlutverk okkar er að veita stjórnendum betri yfirsýn og innsýn í rekstur fyrirtækja til þess að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir, hagrætt í rekstri og náð settum markmiðum.
Framtíðarsýn
Okkar markmið er að veita stjórnendum og öðrum hagsmunaðilum aukið frelsi til þess að sinna því sem er algjörlega nauðsynlegt í rekstri fyrirtækja á snjallari og skemmtilegri hátt.
![Við höfum skilning á rekstri og reynslu af greiningu á fjármálum fyrirtækja](https://advise.is/wp-content/uploads/2021/08/Untitled-design-66-e1628852947331.jpg)
Ekki bara tölur.
Við höfum skilning á rekstri og reynslu af greiningu á fjármálum fyrirtækja og getum því veitt okkar viðskiptavinum faglega ráðgjöf og tekið þátt í að aðlaga mælaborðið að þörfum hvers og eins.
- Við hlustum á þarfir okkar viðskiptavina
- Við höfum skilning á rekstri fyrirtækja
- Við höfum reynslu af greiningu fjármála
- Við leggjum áherslu á notendavænar lausnir
- Við viljum spara þér tíma og fjármagn!
Stjórnendateymi Advise
![](https://advise.is/wp-content/uploads/2021/11/TeamAdvise-03-1-e1650379298170.png)
Andri Birgisson
Tæknistjóri
![](https://advise.is/wp-content/uploads/2021/11/TeamAdvise-02-1-e1650379323551.png)
Mikael Arnarson
Framkvæmdastjóri
![](https://advise.is/wp-content/uploads/2023/10/bogi-e1698338057133.png)
Bogi Agnar Gunnarsson
Viðskiptastjóri
01.
þekking
Starfsmenn Advise hafa unnið að greiningu fjárhagsupplýsinga fyrir fyrirtæki í fjölda ára. Við skynjum þörf stjórnenda fyrir notendavæna og sjálfvirka lausn sem dregur saman allar helstu tölulegar upplýsingar á einn stað og sparar tíma og vinnu.
02.
þjónusta
Við veitum framúrskarandi þjónustu og leggjum áherslu á að leysa vandamál og skapa tækifæri fyrir okkar viðskiptavini. Við viljum að okkar viðskiptavinir nái árangri í sínum rekstri, einfalda þeim vinnuna og veita þá ráðgjöf sem nauðsynleg er í leiðinni.
03.
þróun
Advise er að nútíma stjórntæki í stöðugri þróun. Við hlustum á þarfir okkar viðskiptavina með það að leiðarljósi að bjóða upp á notendavænar lausnir sem auðvelda stjórnendum að skara fram úr á sínu sviði.