Ef að þú vilt bæta við notendum á þínum aðgang þá getur þú sent beiðni á advise@advise.is og þeim verður bætt við. Eigandi aðgangs samþykkir alla nýja notendur sem eru settir inn.
Til þess að komast í aðgangsstýringuna smellir þú á logo/notendanafn í hægra efra horni og ferð þar inn í [manage company]. Þar undir smellir þú á flipa sem heitir [Users & Permissinos]
Eftir að notandi er orðin virkur getur þú stjórnað hverju hann hefur aðgang að, t.d. ef þú ert með nokkur rekstraryfirlit [Business Monitors] getur þú valið að sýna notanda bara eitt af þeim, öll eða einhver ákveðin. Einnig er hægt að stilla hvort viðkomandi sé manager eða viewer á hverju rekstraryfirliti fyrir sig.